Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Ljósmyndun

Innskráningar kubbur

MYNDIR-MYNDIR-MYNDIR!!!!!

24. maí 2008 klukkan 21:00
Jæja þá eru myndirnar mínar komnar inn sem ég tók á Þingvöllum þegar Fjallabjörgunarnámskeiðið Rigging For Recue fór þar fram.
Það er samt eins og liturinn í þeim hafi eitthvað farið forgörðum þegar ég var að setja þær inn... humm fatta ekki alveg hvers vegna... laga það við tækifæri. Samt eru þetta ekki nema bara tvær eða þrjár sem eru svona leiðinlegar.

er að horfa á Evrovision... við hljótum að massa þetta í þetta skiptið;) hehe
En allavega farið og skoðið nýju myndirnar... alveg ágætar sumar hverjar;) þó ég segi sjálfur frá
er að velta því fyrir mér að fara að setja inn myndir á flicer held að það sé ekki vitlaust.

Þar til næst...bæbæ;)
Eybbi
1 athugasemd

Rigging For Rescue

14. maí 2008 klukkan 14:44

frábært veður í dag...
vona bara að það verði svona um helgina líka, verður það þó sennilega ekki örugglega rigning og læti.... en það er þá bara allt í lagiBrosandi hehe

Mike kemur um helgina, það er allt í lagi að kallinn fá nú að kynnast íslensku veðri hehe.
Mike er eigandi Rigging For Rescue, sem er skóli í usa sem kennir fjallabjörgun, hann einmitt kenndi mér og nokkrum öðrum á námskeiði í fyrra í usa. hann kemur um helgina og verður með námskeið fyrir björgunarskólan. ég ætla að vera þarna með honum um helgina, heilsa upp á kallinn, taka svo myndir af námskeiðinu, það verður gamanGlottandi

Á Þjóðhátíð í Eyjum.....

09. maí 2008 klukkan 18:57
Já sææælll.... þurfum við að ræða það eitthvað??



ég var ræða við félaga minn, hann spurði mig hvort ég ætlaði að fara í gæslu enn eitt árið í röð á þjóðhátíð, já að sjálfsögðu sagði ég heheheGlottandi auðvitað er ég klikkaður og ég veit þaðHlæjandi við erum góður hópur sem ætlar að fara enn eitt árið þangað, sennilega verðum við 25-30 manns væntanlega einhverjir nýir sem bætast við.
shitt hvað ég er spenntur að fara hehe enda mjög gaman, góður félagskapur, bara vona að það verði gott veður.
ætli þetta verði ekki seinasta skiptið sem ég fer,  þessu fer allavega að ljúka.
ótrúlega mikið að gera þarna alltaf, stoppar stundum ekki talstöðinn, ég er auðvitað bara adrenalín fíkill og ekkert annað hehe einginn venjulegur maður sem að nennir að sinna þessu ár eftir árGlottandi 
frétti að Bubbi, Hreimur og Páll Óskar verði þarna, ætli það verði þá ekki nóg að gera hjá okkur að verja þá fyrir Árna Johnsen?... held það sé ekki ólíklegtBrosandi þeir eiga það sameiginlegt held ég allir að hafa verið slegnir af Árna.... held það

þetta verður bara gaman held ég.

Sumarið að koma;)

08. maí 2008 klukkan 20:56

Komin tími á blogg??
já örugglega finnst einhverjum það....

sýnist sumarið að vera að komaGlottandi djöfull væri gaman að komast í einhverja fjallgöngunaBrosandi langar allavega að fara að gera eitthvað af viti, málið eiginlega bara það að maður er að vinna svo mikið Hlæjandihehehe það finnst öllum ég örugglega vera hundleiðinlegur hehe Bella og Sæli eru td búin að vera dugleg að hafa samband reglulega og reyna að draga mig með einhvert á fjöl,l Sæli var td að reyna að fá mig með eitthvað í akrafjallið um helgina sem er að koma, en það kom í ljós áðan að ég kemst ekki þar sem ég á að vera að vinna í tólf tíma frá 8:00-20:00 laugardag, sunnudag og mánudag, jamm er að vinna svolítið mikið, en það er bara svonaBrosandi hehe. komin í ágætis vinnu núna, er að vinna alla virka daga frá 09:00-21:00 og svo reyni ég að taka alltaf eitthvað um helgar. Jamm það þýðir ekkert að hanga bara eins og aumingi sko.

Ofurslökkviliðsmaður íslands (Gunni Agnar) félagi minn var með fjallabjörgunarnámskeið fyrir sérsveit ríkislögreglustjóra um daginn, þó gaurarnir séu nú sennilega í góðu formi og vel þjálfaðir þá er nú alls óvíst hvort að þeir hafi farið heilir frá þessu, hehe þar sem Gunni er nú með alhörðustu nöglum sem Vírnet hf hefur alið af sér, eins og flestir vita þá var Gunnar fæddur á Melum í Melasveit, bræddur og mótaður í stál í Járnblendiverksmiðjuni á Grundartanga og síðan mótaður og slegin til hjá Vírnet hf, eða þar til mótaður var nagli, eftir það var farið með hann að melum og þar herti afi hans hann yfir glóandi hraun eldi og skítamokstri.

en nóg með bulliðUllandihehe

Jamm sumarið er komið, heyrði allavega í lóu um daginn..... held að hún hafi verið skotin stuttu seinna.

Já Gui Fél félagi minn setti íslandsmet í bekkbressu, helvíti sáttur með drenginnSvalur

Jón Sprettur súperbabú...babú babúúúú

26. janúar 2008 klukkan 21:32
ætla að vera duglegri að blogga..... ef það er eitthva ð að segja.


Góður félagi minn er að láta hlutina rætast í noregi. búinn að nema þar land og tekinn ástfóstri við innfædda stúlku. helvíti seigur sá stutti og er þetta eingin annar en hann Jón Valur Ólafsson kenndur við "Sprett"
hann er búinn að menta sig úti sem Sjúkraflutningamaður, þannig að hann er á fullu að bjarga mannslífum drengurinn. ég er helvíti sáttur með stráksa verð nú bara að segja það.
svo hugsa ég nú að GÍFURLEG reynsla hans af björgunarstörfum hér heima á íslandi eigi örugglega eftir að nýtast honum þarna úti.
annars þá lítur nú ekki út fyrir að hann sé neitt á leiðini heim blessaður drengurinn. enda held ég að hann hafi það ágætt þarna úti (vona það allavega)
....kannski maður fari bara eitthvað líka.. hummm.

Ég fer á leiðbeinanda námskeiðið i fyrstu hjálp 12 mars, þannig að maður verður af fara að lesa sig til í öllum bókunum og rifja upp og vera vel lesinn þegar maður fer þangað.

Ég er hættur í dyravörsluni, búinn að vera í því í nokkur ár og mæli ég ekki með því við nokkurn mann að fara í það. maður fær að sjá oft á tíðum aðeins of mikið, og lenda í of miklu.
var á einum stað um daginn og fékk flösku í andlitið og stuttu seinna kom 5 kílóa steinn fjúgandi rétt fram hjá okkur.
já held þetta sé bara komið gott af því helvíti.
já og Jón Valur ég er alveg hættur í þetta skiptið;)

svona er nú þetta helvíti.....

Eybbi
1 athugasemd

allt á kafi í snjó

25. janúar 2008 klukkan 23:02
jæja þá er komin tími til að maður láti vita af sér, ekki búinn að blogga í langan tíma.

ég er byrjaður í júdó, sem er bara algjör snild og ekkert smá gaman, hann Björn þjálfari sem er að kenna mér, er sennilega helmingi minni en ég, en að lenda í honum er eins og að lenda í stormi, það er bara ekki stætt, hehe hann hendir manni tl og frá.
ég er staddur í gæslu núna í turninum í kópavogi, hæðsta bygging á íslandi.

en jamm svona er þetta.

það er allt á kafi í snjó, og var bara blindaður bylur í morgun, það styttist í það að maður fari að klifra í ís;)

Verð að fara að klifra

14. nóvember 2007 klukkan 12:31
á mánudaginn fórum við nokkur í klifurhúsið, það var svaka stuð.
svo reynir maður að gera eitthvað um helgina, við ætluðum að fara á einhver fjöll fyrir norðan ég og þórður, ísklifrast og skíða, jafnvel fara á gönguskíðum einhvert, en ég kemst ekki, verð að vinna á föstudagsnótt og laugardagsnótt í bænum, reyni þá að draga Þórð eitthvað með mer á laugardag og sunnudag, jafnavel fara í ísklifur einhvert.
sef þá bara í næstu viku....
Eybbi
1 athugasemd

Klifurhúsið massað

06. nóvember 2007 klukkan 22:06
Jæja þá.....

Við fórum í bæin í gær, ég Sæli og Bella danadrottning, og var stefnan tekin á klifurhúsið. Það var helv... gaman  og klifruðum það alveg endana á milli, hverja leiðina á eftir annari, tókum góða tvo tíma í þetta.
svo var það stællin á eftir, verð nú að segja það að ég og Sæli fórum bara hjá okkur þegar Belinda skóflaði matnum í andlitið á sér, usss (sennilega verið svöng) hugsa að hvaða hestur sem er hefði farið hjá sér líka hefði einhver þeirra orðið vitni að öðrum eins hamförum.

verð að fara þetta oftar....

svo fór ég upp í fjall áðan ásamt Jon Egal og Ingunni, æfðum smá línu vinnu og félagabjörgun.

jamm....

ATH!!!

01. nóvember 2007 klukkan 12:56
Auglýsi hér með eftir áhugasömum til að koma með mér að klifra í fossum (helst frosnum fossum)
Viðkomandi verður að vera áhugasamur og hafa krafta vit og kjark til að takast á við erfið og stundum jafnvel krefjandi verkefni sem geta fylgt klifrinu.
verður að geta tryggt og bjargað sér þegar þess þarf (sem er frekar líklegt að þurfi)
háskólapróf er kostur en ekki nauðsynlegt

Hver vill koma að klifra?...

30. október 2007 klukkan 12:33
er með smá verki í handleggjunum eftir átökin með Sæla í gær, en það er nú í lagi, sársauki er bara góður hehe.
 Svo örugglega ræktin aftur í kvöld.
merkilegt þetta helvítins veður, ég var að vonast eftir frosti út vikuna.. ennn neeeei það var svo sem auðvitað að það yrði ekki, helvíta andskota...
verð bara að vona það besta.

Verð að fara að komst í ísklifur, ég er bara að deyja mig langar svo.